Blakmót og allt aš verša vitlaust bara!!
Ég var nú í þessum töluðu orðum að koma af hörkuspennandi blakmóti sem var verið að halda hér á Laugum. Við Fjallbúar sendum að sjálfsögðu lið í keppnina og ekki var það af verri endanum, þar voru ég, Siggi, Einar, Tinna, Andri, Andrea, Óli Jón og Anna Signý. Við byrjuðum á að keppa við greyi utanvistar/gamla, þau einfaldlega sáu aldrei til sólar og stóðum við uppi sem sigurvegarar.
Síðan voru það helv....djöf......ands.... elsku starfsfólkið, þau voru bara ansi góð og rétt náðu að merja fram sigur með Kristján kokk, Baldvin reddara og Gvend stórbónda í hörkustuði.
Við kepptum við dvergana á Dverg um þriðja sætið og náðum að kreista fram sigur þar, utanvistar/Gamli og Trölli neðri kepptu um fimmta og unnu u/G það með glæsibrag en úrslitaleikurinn var á milli starfsfólks og Trölla uppi, þar kom ný stórstjarna í ljós en Kristján kokkur setti ein 15 stig eða svo í röð, allt úr uppgjöfum en Tröllaliðið einfaldlega léilegt og töpuðu með sirka 20 stigum og leikurinn er uppí 21, soldið spes.
Laugaskóli er að fara í ferðalag á Laugarvatn um helgina og eigum eflaust eftir að skemmta okkur konunglega þar í allskonar vitleysu, sagan af því kemur seinna.... eeeeeen það var vetrafrí sem ég minntist aðeins á í síðasta bloggi, það hófst þriðjudaginn 16.okt hjá mér en flestir voru töluvert lengur, svona er að kunna á kerfið, hehe, en skólinn byrjaði svo aftur bara núna 29.okt þannig að ég var nánast í tveggja vikna fríi.
Í fríinu fór ég til Reykjavíkur og gerði margt og mikið þar, spilaði mikið pool heima hjá Fannari , Tinnu og Sigrúnu en ég gisti hjá þeim downtown sem var mjög þægilegt, þá var minnsta mál að fara niðrí bæ og enn minna mál að koma sér heim en hið ótrúlega gerðist, ég náði aðeins að rata í Reykjavík, það er ekki eitthvað sem gerist oft, eiginlega aldrei. En þetta var fínasta skemmtun þessi ferð og náði ég að neyta töluvers magns af áfengi sem var alveg ljómandi fínt, síðan fór ég heim á sunnudaginn og fór í það að bóndast það sem eftir var af fríinu sem var bara ágætt.
En ég ætla að segja þetta gott í bili og koma kannski með ferðasöguna einhverntíman í framtíðinni ef ég verð ekki búinn að gleyma henni þegar ég blogga næst.
Bæjó
9 athugasemdir

